Breytingaskrá
30. september 2026
Innfellda kaupferlið (
askell.js) tekur nú viðdefaultOffer(eðadefault_offer) sem velur tilboð fyrir fram þegar sölurás býður fleiri en eina vöru. Ólíktoffer, sem festir tilboðið og sleppir skrefinu þar sem það er valið, birtist valið áfram og kaupandi getur breytt því. Verð eða pakkasnið sem er ekki íoffer_cataloglotunnar, eða er uppselt, er hunsað og widgetið notar þá venjulega sjálfgefna valið;promotion_codeá tilboðinu er virkur frá upphafi. Sjá Innfellt kaupferli.
17. september 2026
Kvittunin á greiðslusíðu er nú sundurliðuð eftir því tilboði sem salan var rukkuð af, með sendingargjaldinu og heildarupphæðinni sem það er hluti af. Sendingarleiðin er valin eftir að yfirlitið sótti tilboð síðast, svo það tilboð eitt og sér vantaði gjaldið.
POST /public/api/payment-pages/process_payment_and_finalize/skilar núquote— því geymda tilboði sem innheimtan var byggð á, í sama formi ogPOST /public/api/payment-pages/quote/skilar (quote_token,expires_atogpromotionmeðtalin). Á eldri leiðinni, þar sem greitt er ánquote_token, erquotenullog kvittunin sýnir það tilboð sem síðan var með.
16. september 2026
Afgreiðslupantanir má nú afgreiða í ytra kerfi. Undir Stillingar › Sendingar er valið á milli þriggja kosta: engar pantanir, afgreiðsla í Áskeli eða afgreiðsla í ytra kerfi. Í síðasta kostinum verða pantanir til og eru sendar út með
fulfillment_order.*atburðum eins og áður, en vöruhúskerfi seljandans bókar sendinguna sjálft — bókunarhnappurinn og sendingarmiðinn hverfa því úr pöntunarglugganum, en áfram má afgreiða og afturkalla þar.Tvær nýjar vefþjónustur loka hringnum hinum megin frá:
POST /api/v2/fulfillment-orders/<id>/fulfill/skráir sendinguna (tracking_number,tracking_url,provider_order_id,carrierogweight_grams, allt valfrjálst), afgreiðir pöntunina, sendir viðskiptavininum tilkynninguna um að pöntunin sé á leiðinni og sendirfulfillment_order.fulfilled;POST /api/v2/fulfillment-orders/<id>/cancel/afturkallar pöntun. Báðar eru ítrekunarheldar, skila pöntuninni allri eins ogGETgerir, og409meðorder_cancelledeðaorder_fulfilledþegar staðan stangast á. Þær eru opnar báðum afgreiðsluleiðum, svo seljandi sem afgreiðir í Áskeli má líka sjálfvirknivæða síðasta skrefið úr eigin kerfi.
15. september 2026
Greiðslusíður reikna verðið einu sinni og binda öll síðari skref við það. Verðtilboðið (
POST /public/api/payment-pages/quote/) skilar núquote_tokenogexpires_at, og kortalotur (Adyen/Teya),verify_cardogprocess_payment_and_finalizetaka við tókanum og verðleggja út frá geymda tilboðinu í stað þess að endurreikna tilboðið úr gögnum vafrans. Upphæðin sem viðskiptavinurinn sér, heimildin á kortinu og fyrsta innheimtan eru þar með alltaf sama talan, sendingargjaldi og afslætti meðtöldum.Geymt verðtilboð er borið saman við verðskrána í hverju skrefi og hafnað ef eitthvað hefur breyst:
quote_changed,promotion_terms_changed,combo_eligibility_changedeðainvalid_promotion_code. Útrunnið, þegar greitt eða tilboð annarrar síðu skilarquote_expired,quote_consumed,quote_page_mismatcheðaquote_not_found, og greiðslusíðan sendir viðskiptavininn aftur á greiðsluskrefið þar sem nýtt verð er sótt. Kort sem var staðfest fyrir eitt tilboð greiðir ekki annað (quote_mismatch). Tilboðið skilarpromotionmeð kóðanum sem verðið var reiknað með, svo yfirlitið sýni aldrei afslátt sem innheimtan ber ekki, og tilboðsendapunkturinn er takmarkaður við 120 beiðnir á mínútu á hverja IP-tölu.Vörulínur,
promotion_code,shippingogzip_codesem verðlagsinntak áverify_card,process_payment_and_finalizeog kortalotum eru úrelt. Þau virka í eina útgáfu í viðbót fyrir eldri vafraútgáfur og verða fjarlægð í næstu útgáfu.Sendingargjald sést nú í heildarupphæðinni áður en greitt er, bæði á greiðslusíðum og í widgetinu. Tilboðsbeiðnir (
POST /public/api/payment-pages/quote/ogPOST /api/v2/checkout-sessions/<token>/quote/) taka viðshippinghlutnum, leggja gjaldið viðsubtotal_amount,tax_amountogtotal_amountog skilashipping_feesundurliðun; ókeypis sending kemur með núllum svo hægt sé að sýna að hún kosti ekkert. Fríðindamörk (free_above_amount) eru metin eftir afsláttarkóða, eins og við stofnun checkout, og yfirlitin sýna sendinguna sem eigin línu. Kortastaðfesting greiðslusíðu (verify_card) fær nú einnigshippingogdelivery_address, svo heimildin nái yfir gjaldið.Sendingargjald er ekki lengur hluti af upphæð kaupa þar sem fyrsta tímabilið sendir enga vöru. Prufutímabil frestar vörunum til fyrstu endurnýjunar, sem er þá fyrsta sendingin og rukkar samþykkta gjaldið; tilboð, checkout, kortaheimild og fyrsta innheimtan sýna því öll sömu upphæð án gjaldsins. Prufuáskrift sem sendir stakan hlut strax borgar áfram fyrir þá sendingu, og afsláttarkóði sem sleppir prufutímabilinu færir bæði vöruna og gjaldið fram.
Sendingargjaldskrár (fjórða skref): Dropp-svæðin (heimsending og Flytjandi) eru nú sótt beint frá Dropp. Svæðin eru skrifvarin í stjórnborðinu — verðin í verðskránni eru áfram söluaðilans. Undir Stillingar › Sendingar er hnappurinn „Uppfæra Dropp-svæði“ sem sækir listana strax, og svæðisformið sýnir hvenær síðast var samstillt. Sömu uppfærslu má keyra næturlega með áætlunarverki (
django_celery_beat) sem er skjalað ídocs/shipping-rate-tables-plan.md; það er sett upp handvirkt fyrir hvert umhverfi. Bregðist Dropp, eða skili tómum lista, standa fyrri póstnúmerin óbreytt.Samstillt Dropp-svæði ráða nú framboði: sé virkt samstillt svæði til fyrir heimsendingu (eða Flytjanda) hjá Dropp-tengingu er sú sendingarleið ekki í boði á póstnúmer utan svæðisins, óháð verðskránni — verðin eru áfram söluaðilans. Sé ekkert samstillt svæði til breytist ekkert. Endurnýjanir sem lenda utan svæðis eru áfram rukkaðar á fasta gjaldinu og skráð viðvörun.
14. september 2026
Sendingargjaldskrár (fyrsta skref): sendingarleið getur nú haft verðskrá eftir svæði (
ShippingZone, póstnúmer og bil) og þyngdarbili (ShippingRate), í stíl við verðskrá Dropp. Endurnýjanir verðleggjast eftir afhendingarpóstnúmeri samningsins og reiknaðri þyngd vörunnar; hafi leið enga verðskrá gildir fasta gjaldið áfram og ekkert breytist. Verðskrár eru enn sem komið er settar upp í Django-admin; stjórnborðsviðmót og póstnúmeraval við kaup koma í næstu skrefum.Sendingargjaldskrár (annað skref): verðskráin gildir nú við kaup.
POST /api/v2/checkouts/, checkout-lotur, greiðslusíður og innfelldar Teya/Adyen-greiðslur verðleggja sendingarleið með verðskrá eftir póstnúmeri afhendingarheimilisfangsins og þyngd vörunnar, og hafna leið sem verðskráin nær ekki yfir sendinguna (shipping_not_available). Tilboðsbeiðni checkout-lotu tekur viðdelivery_zip_codeog skilarshipping_optionsverðlögðum fyrir sendinguna; widgetið og greiðslusíður sækja listann að nýju þegar póstnúmer breytist.shipping_selectionskráirzone_nameogweight_bandsem verðið var lesið úr.Sendingargjaldskrár (þriðja skref): svæði og verðskrár eru nú settar upp í stjórnborðinu í stað Django-admin. Undir Stillingar › Sendingar bætist við listi yfir sendingarsvæði þar sem póstnúmer eru slegin inn sem bil og stök númer („101-113, 170, 200-276“); svæði sem eru samstillt frá flutningsaðila eru læst. Hver sendingarleið fær verðskrártöflu undir sendingarleiðarforminu — línur eru þyngdarbil, dálkar eru svæði auk dálks fyrir „annars staðar“ — og taflan er vistuð í einu lagi, þannig að hafni þjónninn einni línu stendur eldri taflan óbreytt. Fyrir Dropp-leiðir í krónum má sækja verðskrá Dropp (Dropp 2026) með einum smelli; hún setur upp svæðin sem þarf. Vörulistinn merkir nú vörur án þyngdar með „Engin þyngd“ þegar einhver sendingarleið er verðlögð eftir verðskrá, því slíkar vörur er ekki hægt að senda með þeim leiðum.
11. september 2026
Sendingargjald er nú innheimt. Gjaldið er hluti af tilboðinu (
total_amountá/api/v2/checkouts/ogshipping_feesundurliðun) og bætist sem lína af gerðinnishippingá hverja innheimtu sem sendir vöru — fyrstu innheimtuna sem sendir og hverja endurnýjun. Afsláttarkóðar og pakkaafslættir lækka ekki gjaldið, ogfree_above_amountþröskuldur sendingarleiðar er metinn á móti vöruupphæð innheimtunnar eftir afslætti. Endurnýjanir nota gildandi verð sendingarleiðarinnar; sé leiðinni eytt er samþykkta gjaldið notað. Gjaldið fylgirshippingeiginleikanum, og sendingarval skráð fyrir þessa útgáfu er ekki rukkað.Bókhaldstengingar fengu
shipping_product_id: bókhaldsvaran sem sendingargjaldslínur bókast á (virðisaukaskattur hennar þarf að passa við gjaldið); sjálfgefna varan er notuð sé hún ekki sett.Sendingarleiðir (
shipping-optionsí stjórnborði) fengutax_rate: virðisaukaskattsþrep sem gildir um sendingargjaldið, þar sem sendingar bera oft annað þrep en varan. Sé það ekki sett gildir sjálfgefið skattþrep reikningsins.linesí innheimtusvörum (/api/v2/billing-runs/og vefkrókar) geta nú innihaldiðline_typegildiðshipping.
7. september 2026
Nýir V2 endapunktar til að stofna, sækja, uppfæra og eyða afsláttum og kynningarkóðum:
/api/v2/coupons/,/api/v2/coupons/{couponId}/,/api/v2/promotion-codes/og/api/v2/promotion-codes/{promotionCodeId}/. Listar styðja síur (valid,duration,code,coupon,active,customer_referenceo.fl.) ogpage_sizesíðuskiptingu. Eyðing er mjúk og hafnað er að eyða afslætti eða kóða sem þegar hefur verið nýttur.Afslætti og kynningarkóða sem eru útrunnir (
redeem_by/expires_atliðin) má nú uppfæra og eyða, bæði í stjórnborði og API; dagsetning í fortíðinni er aðeins hafnað á gildum afslætti eða kóða.max_redemptionsgildið 0 er nú geymt sem engin takmörkun.Swagger (
V2 Coupons) og skjölun uppfærð; sjá Afsláttarkóðar.Pakkaafslættir (combo discounts): seljandi getur nú skilgreint í stjórnborðinu að vara fái sjálfvirkan afslátt (prósentu eða fasta upphæð) þegar viðskiptavinur er einnig með aðrar tilteknar vörur — hvort sem þær eru keyptar í sömu pöntun eða eru í öðrum virkum samningi. Afslátturinn er reiknaður sjálfkrafa á hverri innheimtu og fellur niður þegar viðskiptavinurinn hættir með skilyrðisvörurnar.
/api/v2/subscription-offer-quotes/,/api/v2/checkouts/ogcheckout-sessionstilboð skila núcombo_discountslistanum með þeim pakkaafsláttum sem gilda;subtotal_amount,tax_amount,total_amountogrecurring_*upphæðir innihalda afsláttinn nú þegar. Tilboðsfyrirspurn (subscription-offer-quotes) tekur nú við valkvæðucustomertil að taka tillit til annarra samninga viðskiptavinarins, óháð því hvort afsláttarkóði er sendur.
19. ágúst 2026
unit_amount_override(fast einingaverð á lið) er nú stutt í V2 vörubreytingum á virkum samningi:items/update,items/addogproration-previewá/api/v2/subscription-contracts/{id}/. Áður virkaði reiturinn aðeins við stofnun samnings. Íitems/updateheldur liðurinn núverandi fasta verði ef reitnum er sleppt, en skýrtnullfjarlægir það svo liðurinn fer aftur á verð úr vörulista. Hlutfallslínur vegna slíkrar breytingar fá nýjaproration_reasongildiðunit_amount_changed.Vörubreytingaslóðirnar (
items/add,items/update,items/remove,proration-previewog skyldar aðgerðir) hafna nú óþekktum reitum og reitum sem viðkomandioperationstyður ekki með400villu, í stað þess að hunsa þá þegjandi. Samþættingar sem sendu aukareiti á þessar slóðir þurfa að fjarlægja þá.items/updatetekur nú eingöngu viðoperationgildinuupdate_item.Swagger og skjölun uppfærð til samræmis; sjá Áskriftarsamningar V2.
26. janúar 2026
Nýr endapunktur /api/subscriptions/{subscriptionId}/set_expiry/ sem leyfir að breyta gildistíma áskriftar.
15. desember 2025
Viðskiptavinir (/api/customers/) taka nú við og skila símanúmeri (phone) þegar þeir eru uppfærðir í gegnum API-ið og Swagger skjöluninni hefur verið uppfært til samræmis.
25. nóvember 2025
Nýr endapunktur fyrir færslur (Transactions) svo hægt sé að sækja lista yfir færslur og sía hann.
9. október 2025
Hægt að setja id á færsluhirði þegar checkout er stofnað. Áður var eingöngu hægt að sækja ákveðinn færsluhirði með því að setja inn áskriftarleið.
Nú fylgir færsluhirðir með áskriftarleiðum
29. ágúst 2025
Nýr endapunktur /api/payments/{uuid}/refund/ sem leyfir að endurgreiða staka greiðslu.
26. september 2024
Ný gildi á áskriftum sem gefa til kynna hvort áskrift sé komin í uppsögn, cancelled og cancel_date.
Lagað misræmi í Swagger skjölun miðað við raunveruleg svör frá vefþjónustunni.
3. september 2024
Röðun möguleg í endapunktinum /api/subscriptions.
18. apríl 2024
Nýr endapunktur /api/webhooks/ sem leyfir að búa til og vinna með vefkróka sem senda tilkynningar um ýmsa atburði sem gerast í Áskeli.
28. febrúar 2024
Nýr endapunktur /api/hello/ sem staðfestir að vefþjónustan virkar og er hægt að nota til prófana.
amount og discount virka nú sem valkvæmar breytur þegar áskrift er bætt á viðskiptavin undir /api/customers/{reference}/subscriptions/add/
5. janúar 2024
Skjölun í Swagger lagfærð. Bætt við GET á staka greiðslu á slóðinni https://askell.is/api/payments/{uuid}/.
7. desember 2023
Nú er hægt að takmarka úttakið sem listi yfir áskriftir skilar með því að setja breytuna
?type=lightí URL. Við þetta er minna af upplýsingum um tengdan viðskiptavin og færslusögu sótt og hentar betur til að sækja stóran lista af áskriftum til að vinna með síðar og sækja meiri upplýsingar fyrir einstakar áskriftir ef þarf.
2. desember 2023
Nýr valmöguleiki þegar listi yfir áskriftir eða viðskiptavini er sóttur. Hægt er að setja breytuna
?page_size=100í URL til að fá 100 færslur í einu. Við þetta breytist úttakið frá því að vera listi af færslum yfir í að vera listi af færslum íresults, fjölda færslna ícountog slóðir á næstu og fyrri síðu ínextogprevious. Hámarks stærð á síðu er 1000 færslur.